letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de heimkoma - vilhjálmur vilhjálmsson

Loading...

mín bernskuslóð óbreytt er
er ég út úr bílnum fer
og mér á móti koma pabbi minn og mamma
en í dyrum stendur draumbjört kona
drottning minna glæstu vona
nú kem ég heim í kæra dalinn minn

já, þau taka öll mér aftur
opnum örmum og með tár á hvörmum
er kem ég heim í kæra dalinn minn

gamli bærinn er þarna ennþá
orðinn fúinn, burstin skökk
og þarna er smalakofinn sem ég byggði forðum
tvö við leiðumst niður græna grundu
glöð og sæl á dýrri stundu
er kem ég heim í kæra dalinn minn

en þá vakna ég í værðarvoð
og við mér blasir sjúkrastofa

og það rennur upp fyrir mér
já, þetta var bara draumur

ó, guð einn veit hvort mér veitist kraftur
að vakna upp af svefni aftur
og komast heim í kæra dalinn minn

en þau taka öll mér aftur
opnum örmum og með tár á hvörmum
er kem ég heim í kæra dalinn minn

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...