letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de sofðu vel - úlfur úlfur

Loading...

loftið er mettað af reyk og náfýlu
aumingjar rifnir í tvennt af rándýrum
hangi með fávitum eða frávik-m
skál fyrir þeim að drápu sig fyrr á árinu
ég býð upp á næsta round
ég býð ykkur góða nótt
ég tala í gegnum tálknin
því tungan er alltof stór
þetta er fyrir þá sem leituðu skjóls inni í miðju hvirfibyl
og fyrir þá sem ráfuðu ringlaðir ofan í kviksyndið
mánaskin og blóðið flæðir eftir götunum
með nagla í gegnum lófana og í fermingarfötunum
ég legg mig undir ljósastaur sem kiknar undan snörunum
en trúi bara því sem að er skrifað um í blöðunum
klæddur í jakkaföt
mæti í jarðarför
tæti í mig mannakjöt
bý mig undir ragnarök
borg í ljósum logum, loksins finn ég fyrir yl
hvernig get ég boðað frið þegar ég er ekki til?

þú veist að það færist nær og nær
þú heyrir hvert slag sem klukkan slær
og ég
birtist þér
þú heyrir mig færast nær og nær
þú finnur hvert slag sem klukkan slær
og ég
birtist þér

og ég syng……
komdu með
komdu með

þeir veiku verða veikari
enginn hefur orku eða vilja til að breyta því
aldrei kom nein hetja en allir virðast vera leitandi
heimilið mitt brennur og ég ætla að brenna með
hrafnarnir þeir segja sögu næturinnar alla morgna
ég býð þeim upp á te og hl-sta þangað til ég sofna
ég vakna á kvöldin og ég heilsa mínum vinum
og við étum það sem úti frýs og bíðum í snjóbyljum
þeir sem vilja ekki veiða sér til matar munu deyja einir
hjörðin getur ei stoppað, heldur áfram, enginn er áfram dreginn
ég sekk í svarthol ágirndar og afbrýði út í nágranna
það myrkur sem að þekur hugann er að ágerast
ekki kveikja á neinum kertum, ég er fyrir utan
dragðu fyrir gluggann eða hentu í mig afgöngum
frostið bítur kinnar mínar, myrkrið bíður eftir mér
farðu inn og lokaðu eða komdu með í skemmtiferð

þú veist að það færist nær og nær
þú heyrir hvert slag sem klukkan slær
og ég
birtist þér
þú heyrir mig færast nær og nær
þú finnur hvert slag sem klukkan slær
og ég
birtist þér

og ég syng……
sofðu vel
sofðu vel

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...