letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de spor - svavar knútur

Loading...

langt liggur slóð þín
dóttir mín góð
um fjöll og um dali
fjarlægt land
þar sem ég áður
reikaði þjáður
leitandi skjóls um eyðisand
reikaði einn um eyðisand

liggi þín leið um
lágský á heiðum
þokuna glæðir mánans skin
spor mín í sandi
sífelldur vandi
láttu þau hverfa í hyldýpin
hverfa í kolmyrk hugdjúpin

finn þína eigin slóð
fegurri verður leiðin þín
far þína eigin slóð
fetaðu ekki í förin mín
forðastu, dóttir, fótspor mín

stundum ekkert sést
hvorki fjöll né firðir
þá auðnin er alger
allt er týnt
ekki glata voninni
barnið mitt

höfuðið berðu
hátt og þá sérðu
allt sem var hulið þinni sýn
þá sérhver hríð
mun reynast þér blíð
og áður en varir sólin skín
senn mun hún verma sporin þín

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...