letra de múspell - skálmöld
kvika streymir og kraftar losna
klettar brenna, (klettar brenna)
barnið dreymir en taugar trosna
tárin renna (tárin renna)
bráðna steinar og bergið flýtur
brostnir draumar, (brostnir draumar)
ljósið veinar og loginn hvítur
landið kraumar, (landið kraumar)
bálið sem veldur bardögum
bjarma á kveldið kastar
surtur fer heldur hamförum
hér sefur eldur fastar
jötnar æða um jörð í molum
jöklar gráta
ísinn bræða á æstum kolum
æpir hnáta
móðir huggar þar mædda dóttur
múspell f-gnar (múspell f-gnar)
dansa skuggar er dofnar þróttur
dagur þagnar (dagur þagnar)
þú deyrð í nótt!
(himinninn er hulinn sóti
hraunið rennur okkur móti
svartnætti til allra átta
illt er myrkur múspellsnátta)
(finnum hvernig fætur svíða
feigir eftir okkur bíða
saman munum lífið láta
lítil rödd er hætt að gráta
ryðst úr sprungum, gjám og gjótum
gríðarbál í risafljótum
loki gefur lausan tauminn
leikur sér við stríðan strauminn)
liggjum við á litlu skeri
lyftist glóðin nær
sárt að hérna beinin beri
barnung dóttir kær
loks ég finn að lítill skrokkur
lætur eftir sitt, (lætur eftir sitt)
hraunið breiðir yfir okkur
elsku barnið mitt, (elsku barnið mitt)
letras aleatórias
- super giz112 › letra de the dude - super giz112
- ognjen inas › letra de high ko zmaj - ognjen & inas
- soul monsters › letra de でも - soul monsters
- sayonofficial › letra de vom newcomer zum king - sayonofficial
- akner › letra de kalem ve bilye (feat. neg) - akner
- josh deamer › letra de polarized - josh deamer
- daretrix › letra de sometimes (cover) - daretrix
- sylwia lipka › letra de cztery łapy - sylwia lipka
- siddharth chauhan › letra de khairiyat mashup - siddharth chauhan
- will kellum › letra de highs and lows - will kellum