letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de með drekum - skálmöld

Loading...

hátt á vængjum vættur
veru fylgja herir
yfir horfir hafið
hendast nærri fjendur
skríða yfir skrúðinn
skrælingjar í brælu
ljótir á oss leita
landið er í vanda

barðist fólk á fjöru
fór á höfðann þórunn
bogi gat ei geigað
grenja undan frenjur
gjalda ógn með eldi
yfir allt sem lifir
hetjur böls og haturs
hrekjast undan dreka

um fór, ógnandi stór
álengdar stóðu þá bragi og þór
hart skal mæta hörðu
blés þá brandinum sá
brunnu þar allir við sandvíkurá
jöfnum þá við jörðu
jöfnum þá við jörðu

eldraun auðna þessa þreytti
þórunn með sitt sverð og skjöld
nóttin til hins betra breytti
blóðgaði hún drýslafjöld

misstum bæði vár og vini
var það blóðrauð sumarnótt
rétt í tungls- og röðulsskini
ráðast kvæði drótt

bliksvart blóð
brennheit glóð
stelpan stóð
stjörf og hljóð

þeir komu á skipum, þeir komu úr lofti
í kraumandi veðri og sjó
þúsundum saman með þrumandi öskri
og þefjan sem vit okkar sló
vopnlausir flestallir, vargar og skepnur
sem vilja með kjafti og klóm
rífa þig sundur og ráðast á næsta
með rauðhlaupin augun og tóm

blésu þeir eldi á bátana okkar
við börðumst á móti með heift
verk þeirra manna sem ganga á glapstigum
gátum við alls ekki leyft
dýrkeyptur sigur en drekar og menn sýndu
duginn sem skilaði þeim
réttinum að geta ráfað að heiman
og ratað á nýjan leik heim

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...