letra de að vetri - skálmöld
vargsgól, vetrarsól
vesturland í kringum jól
kolsvart, hjarnið hart
himinhvolfið lýsir okkur stjörnubjart
köld lönd, klakabönd
klífur fjallið loppin hönd
snöggt hlær snarpur blær
það snjóar, það snjóar, það snjóar
við hnjúk, vaðmálsdúk
vefur að sér, dulan mjúk
hlýtt skinn, hlífir kinn
hamast við að komast yfir fjallgarðinn
átak, bogið bak
býr sig undir vopnaskak
snöggt hlær snarpur blær
það snjóar, það snjóar, það snjóar
gengur yfir gamalt hraun
gista skúta þar á laun
þeirra mikil þrek- er raun
útilegumenn
horfa eftir henni burt
héla frystir visna jurt
eftir henni aldrei spurt
það snjóar, það snjóar
snjóar óðum á snjáðan veg
snögg er þórunn og vörpuleg
snjóar, hvernig sem snýrðu þér
snarlega yfir fljótið fer
snjóar nú yfir sneiðinginn
sneisafullur er dalurinn
snjóar, þótt komi snemma vor
snörla vitin og vella hor
snjóar ákaft snæfellsnes
snarpur vindur um andlit blés
snjóar, þar sem við snertum hel
snjakahvítt hennar hugarþel
snjóar og hvergi snarkar glóð
snauðir deyja er frystir blóð
gömul kona, grá og hokin
gengur ein í kafaldsbyl
hárið sýlt og hettan fokin
hún kom níður stekkjargil
gengur sér til gagns og hita
gamlir fætur virðast strita
ferðir hennar fæstir vita
það snjóar!
hennar siður, friggjarfriður
fótaskriður rennir niður
brakar viður, stafur styður
stíginn ryður, gæfusmiður
þórunn biður lofn um lið
letras aleatórias
- roodia obsin › letra de tarantino(il cammello) - roodia obsin
- the rolling stones › letra de till the next goodbye - the rolling stones
- dskillz harris › letra de official - dskillz harris
- banx › letra de daquan made me do it - banx$
- oegdlo › letra de don draper - oegdlo
- vic vem › letra de spilld talang - vic vem
- kara korean › letra de secretly secretly - kara (korean)
- cause commune › letra de c'est ma vie - cause commune
- rolf zuckowski › letra de es gibt noch echte kinder (l'italiano) - rolf zuckowski
- egotrue › letra de rainroom - egotrue