letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de ég styð þína braut - silja rós & kjalar

Loading...

[verse 1: kjalar]
þú lífsins vindur
hringrás sem syngur
í flæði þú
ferðast víðar nú
staðreyndin er sú

[verse 2: silja rós]
ég skýjahnoðri
sveima hátt í himinhvolfi
ég fylgi þér
hvert sem er
þinn straumur ýtir mér
[pre-chorus: kjalar, silja rós]
jörðin hún hringsnýst
ég veit fyrir víst að ekkert mun stöðva það
við lifum, við deyjum
í skömminni þegjum, en hvað ef við stoppum þar?

[chorus: silja rós & kjalar, silja rós]
þinn sannleikur þraut
en ég styð þína braut
tengd eins og tunglið og sterk sjávarbönd
saman við göngum um ótroðin lönd
ég styð þína braut

[verse 3: silja rós]
þú lífsins lækur
streymir svo sprækur
skilur eftir slóð
saga þín sem ljóð
sannleikurinn grár

[verse 4: silja rós & kjalar]
mitt flöskuskeyti
ferðast flóttaleið
ber með mér boðin
dæmd og dofin
færi þér lausnarorð
[chorus: silja rós & kjalar, silja rós]
þinn sannleikur þraut
en ég styð þína braut
tengd eins og tunglið
og sterk sjávarbönd
saman við göngum
um ótroðin lönd
ég styð þína braut

[bridge: kjalar, silja rós & kjalar, ]
það sem hjartað þráir
tendrar bálið
fylgdu því alla leið
þín hugljómun
sleppum dómum
fylgdu því alla leið

[outro: silja rós & kjalar]
tengd eins og tunglið og sterk sjávarbönd
saman við göngum um ótroðin lönd
ég styð þína braut
ég styð þína braut
ég styð þína braut

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...