letra de síðasta kveðjan - rstíðir
kúrir um sína óskasteina
áfram uns ekkert amar að
vonar að þessi sé sú eina
en hefur ekkert að segja um það
áhyggjulaus um eigin frama
tónlist mun lækna ógróin sár
finnst eins og alltaf verði þér sama
en hví falla þá þessi tár
veslings hjartað mitt
verðuru þú mér að aldurtila
niðurdreginn þar sem enginn sér
tómarúmið þitt
leysist upp að morgni því að
þú getur gert hvað sem er
og ég vona að kveðja mín komist til skila
vindurinn lætur nú í sér heyra
þungur veturinn togar í bjartsýnismann
heldur að varla þoli hann meira
hví kom þetta fyrir hann
sumarið það kom ekki heldur
lífið hefur svikið sinn góða son
daufur virðist nú hans vonareldur
og nú er elding hans eina von
veslings hjartað mitt
verður þú mér að aldurtíla
niðurbrotinn þar sem enginn sér
tómarúmið þitt
leysist upp að morgni því að
þú getur gert hvað sem er
og ég vona að kveðjan mín komist til skila
vikingur
letras aleatórias
- natouille › letra de madripoor - natouille
- banda bassotti › letra de viento nuevo - banda bassotti
- ignitor › letra de to brave the way - ignitor
- chic dorapa › letra de absurdo - chic dorapa
- miraie › letra de see thru uu - miraie
- werwe › letra de beyond - werwe
- elvin grey › letra de по твоим глазам (in your eyes) - elvin grey
- irina rimes › letra de m-am încurcat - irina rimes
- lazytown › letra de löggulagið - lazytown
- flower club › letra de st4tic - flower club