letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de skyttan - moses hightower

Loading...

ég hef ýmist farið
eða setið kyrr
eða fetað beggja bil þess

en þú tókst loks af skarið
sem aldrei henti fyrr
og ekkert benti til þess

við erum ljóta parið:
ég loga af heift og pirri
og þú ornar þér við yl þess

að fanga í orðum, það er ekki til
í dæminu – þótt ég æfði mig
og þótt mig blóðlangi að gera því skil
skotinu sem hún hæfði mig

við beygjum okkur, buktum
tvær snjáðar sálir, sneyptar
fyrir duttlunganna veldi

og orðhöggvumst og tuktum
hvort annað til, full heiftar
uns líða fer að kveldi
en svo líður loks að kveldi
og þá lýsirðu þessum luktum
sem í þig eru greyptar
og undir eins ég þiðna allur innvortis
og er þarnæst sleginn eldi

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...