letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de bílalest út úr bænum - moses hightower

Loading...

í borginni standa göturnar hálfauðar
og ráðhúsið það húkir hnípið
alltof stórt en pasturslítið
endurnar sjálfdauðar

​og bæjarstarfsmenn læðast þöglir um í keng
og helgarfeður teyma helgarbörn í spreng

er ekki kominn tími á að bregða sér frá
gefa sér tíma og hræra í smá
bílalest út úr bænum
– héðan í einum grænum?

​er ekki kominn tími á að bregða sér frá
fara og reyna að slaka aðeins á
í bílalest út úr bænum
– með blakandi tungu í blænum?

​við þjóðveginn standa kindurnar lifaðar
þær mæna brostnum bænaraugum
líkar skýjum eða draugum
ætli þær vilji far?

​og um í sólskininu sveima flugurnar
þær leggja kollhúfur og bjóða góðan dag
er ekki kominn tími á að bregða sér frá
gefa sér tíma og hræra í smá
bílalest út úr bænum
– með blakandi tungu í blænum?

​er ekki kominn tími á að bregða sér frá
fara og reyna að slaka aðeins á
á hóflegum hraða ég vil fá að fara
þar líður mér best, þar kann ég við flest allt
við flest allt
og slaka á

​uppspretta er yndis alla leið
útvarpið í sjálfrennireið

er ekki kominn tími á að brеgða sér frá
gefa sér tíma og hræra í smá
bílalest út úr bænum
– héðan í einum grænum?

​er еkki kominn tími á að bregða sér frá
fara og reyna að slaka aðeins á
í bílalest út úr bænum
– með blakandi tungu í blænum?

er ekki kominn tími á að bregða sér frá
gefa sér tíma og hræra í smá
bílalest út úr bænum
– héðan í einum grænum?
​er ekki kominn tími á að bregða sér frá
fara og reyna að slaka aðeins á
á hóflegum hraða ég vil fá að fara
þar líður mér best, þar kann ég við flest allt
við flest allt
og slaka á

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...