letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de inni í miðjunni að dansa - kef lavík

Loading...

enn þá ferskt inn í minninu
útreið hefst í fölri dagsbirtu
sérhver snerting verður hnefahögg frá þér

eitrað vín – deyfandi
beinagrindur hanga úr ljósakrónunni
fingurnir
grípa um mittið eins og skjöld

syngjum ,,líkami stattu nú
örlítið lengur
þessi rósadans
er það síðasta
sem þú gerir þótt þú sért þreyttur”

svífa þúsund augnablikanna
eins og geislabaugar á hana
er þau renna milli handanna okkar

bjórarnir helskórnir
ég sé flóðljós lýsa björt í kring um þig
púkarnir
fljúga hársbreidd yfir mig

og við föðmumst og vöggum
mjöðmunum við taktinn
gegn um þykka þoku
sést djöflahópur
að hringsóla í kringum valsinn
þúsund öskur keyra skjávarpa
sem lýsa upp alla veggina
endurtaka fyrstu nóttina okkar

sálin mín, lotningin
er auðsjáanleg í nætursólinni
sér hún mig
kannski í réttum hlutföllum

syngjum ,,fætur nú fetið þið
létt yfir gólfið
og dansið mjaðmir
því dauðinn starir
og dæmir í hljóði”

heyri í úlfunum á hurðinni
þétti eyrað upp við brjóstið þitt
til að fókusa á hjartsláttin í því

skartgripir, vængirnir
ég bindi þyrnikvist um hvíta hálsinn þinn
fæturnir
staðnæmast að að morgni til

og ég finn er ég sleppi þér
storkna í mér blóðið
það er hvirfilbylur
af minningunum
að fjúka um gólfin
og við föðmumst og vöggum
mjöðmunum við taktinn
gegn um þykka þoku
sést djöflahópur
að hringsóla í kring um valsinn

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...