letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de (í hita leiksins) - kef lavík

Loading...

[verse 1]
ég sá þig spilandi á hörpuna
ég fylltist vanmætti og viðbjóði á mér
ég get aldrei gert neitt jafn fallegt
og löngu lögin þín
ljóð sem þú syngur verða að flugvélum
sem skera himininn með skýjarönd
tárvotum augum stari ég á þig
með ekka í hjartanu
ég myndi tileinka þér listaverkin mín
bara ef ég gæti gert þau nægilega góð
á einni nóttu varð ég að engu
hún varð mér nánast allt
í neonljósum birtust útlínur af mér
ég fæddist aftur í þeim allsnakinn og einn

[chorus]
ég fann tilgang í hita leiksins
en þú gerðir mann úr mér
ég fann öryggi
í sæng með skrímslum
og ég varð svo einn af þeim
ég fann vini í öllum djöflunum
því þeir tóku mér eins og ég var
ég fann umhyggju í örmum heimsins
sem að ekki vildu mig fyrst
ég fann sjálfan mig í niðamyrki
og það byrjaði hjá þér

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...