letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de þyrnigerðið - jónas sig

Loading...

það eru klukkur
upp á veggjum
sem aldrei ganga
munu til baka

það eru tankar
út með ströndum
sem frusu fastir
við þennan klaka

og það er skrýtið
til þess að hugsa
að það var þessi
sami heimur

þetta sama rúm
þetta rými
sem við áttum
aldrei saman

fyrir þyrnigerðið

það stoðar lítt að steyta
sinn hnefa
en komast ekkert áfram
með ekkert að gefa
meðan á bakvið hverja hurð
er ný minning
þú situr bara fastur
ert andsetinn af efa

maður getur ekki bara sagt
“það er allt í lagi
þó minn innri maður sé vofa!”
og það er einum of ódýrt
að geta bara verið gæji
rétt á meðan aðal spaðarnir sofa

en kannski er eitthvað nýtt
upphaf í boði
ef ég kemst mína leið
gegnum þyrnigerðið

nú vekur mig nýr dagur
sem upprisinn er
úr rökkrinu
svo f-gur

ég hugsa mér til hreyfings
losa um fjötrana
þakka lífsbókinni
lexíuna
ég brýst í gegnum gerðið
sem rífur hold mitt
það skiptir mig engu
því skipið bíður

ég reisi upp mastrið
með dúnhvítum seglum
ég sigli út á hafið
og rokið það blæs mína leið

og við hittumst handan við hafið
þar sem heimurinn beið
við þyrnigerðið

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...