letra de sturlunga - gráðostur
öld sundrunga og stundarkorn hreint svakaleg
öld sturlunga og ég þórður kakali
ýlfur af heiðum, skuggabaldur, sjakali
nú skeiðar sleipnir, óðins augað vakandi
líf á lúk-m, ekki samviska né sakargift
berserkir í blóðstreyminu, k-ml í mínum bakgarði
feigðin fýkur yfir fannbreiðum
gustar að ofan, þeytast heksíur á gandreiðum
í för með fóstbræðrum og mannleysum
gandar brokka, drungi þokast meðfram sandskeiðum
samflot af heiðnum vættum
menn vita ei, hvað eiga í vændum
dagur liðast, heyja bændur
deyr fé, deyja frændur
kristnir menn með blóts siði
kvíðnir, en máske halda kynjaverur ró sinni
kom auga á syndasel í ósinni
og það eru svartálfar í berginu og tilberi í kjósinni
(yfir vor land, svona höldum hraða
ríðum, í för að hefna örlygsstaða)
skeiðar stóð og ræfla og göngufærra um hæðir
það er bardagi í flóanum og haukdælingum blæðir
falla fjendur, falla vinir
fjúka líf, fjúka af limir
og blóðugt er brimið
sólarlagið rautt, þar sem heljar snerta himinn
dagur deyr, í eilífum rökkva
orð óma að handan, eigi skal höggva
letras aleatórias
- josaleigh pollett › letra de dig - josaleigh pollett
- nevan › letra de can't replace you - nevan
- nonsens › letra de nobody else - nonsens
- dj hoppa › letra de flat line - dj hoppa
- helen reddy mickey rooney › letra de i saw a dragon - helen reddy & mickey rooney
- azazus › letra de onlyfans - azazus
- yu yan › letra de idiot - yu yan
- mayot › letra de chips - mayot
- dababy › letra de call it even - dababy
- death plus › letra de in the trunk - death plus