letra de desember (búinn að öllu) - baggalútur
þegar þjóðin loksins vaknar á þorláksmessunni
og þarf að fara að hysja upp um sig
og almenningur kiknar undan pressunni,
þá undarlegur sælufiðringur fer um mig.
húsmæðurnar tryllast og tapa kúlinu,
tæta úr hillum appelsín og malt.
en ég tek ekki þátt í jólapúlinu
því ég er fyrir löngu búinn að gera allt.
búinn að skreyta og taka til.
tréð og serían klár.
heimilið fyllist af ilm og yl.
ég eisaði þetta í ár.
meðan aðrir snuðra upp gjafir og reyna að krota í kort
og krakkasuðið magnast þúsundfallt
er kallinn bara heima að hamstra næstu sort
því hann er fyrir löngu búinn að gera allt.
búinn að baka og taka til.
tíunda sortin er klár.
heimilið mökkfullt af mildum yl.
ég m-ssaði þetta í ár.
búinn að öllu, bravó fyrir mér.
nú bíð ég sultuslakur eftir þér — desember.
ég hangi bara og hinkra eftir þér — desember.
letras aleatórias
- brymo › letra de again - brymo
- icd › letra de chân chạm đất - icd
- enare gaemr › letra de dream - enaré gæmr
- skeletnica › letra de 8a8a8a - skeletnica
- moon sand land › letra de cut the carpets - moon sand land
- period tears › letra de suicide freestyle (2019) - period tears
- cloud aerow › letra de drama queen - cloud aerow
- zebrahead › letra de untitled hidden track - zebrahead
- bez cenzury › letra de wspomnienia - bez cenzury
- fancy legend › letra de nе стану лучше - fancy legend