
letra de lítill drengur - vilhjálmur vilhjálmsson
[textar fyrir “lítill drengur”]
[vísa 1]
óðum steðjar að sá dagur
afmælið þitt kemur senn
lítill drengur, ljós og f-gur
lífsins skilning öðlast senn
vildi ég að alltaf yrðir
við áhyggjurnar laus sem nú
en allt fer hér á eina veginn
í átt til foldar mjakast þú
[vísa 2]
ég vildi geta verið hjá þér
veslings barnið mitt
umlukt þig með örmum mínum
unir hver við sitt
oft ég hugsa auðmjúkt til þín
eink-m þegar húmar að
eins þótt fari óravegu
átt þú mér í hjarta stað
[viðlag]
man ég munað slíkan
er morgunn rann með daglegt stress
að ljúfur drengur lagði á sig
lítið ferðalag til þess
að koma í holu hlýja
höfgum pabba sínum hjá
kúra sig í kotið hálsa
kærleiksorðin þurfti fá
[vísa 3]
einka þér til eftir breytni
alla betri menn en mig
erfiðleikar að þó steðji
alltaf skaltu vara þig
að færast ekki í fang svo mikið
að festu þinnar brotni tré
allt hið góða í heimi haldi
í hönd á þér og með þér sé
[viðlag]
man ég munað slíkan
er morgunn rann með daglegt stress
að ljúfur drengur lagði á sig
lítið ferðalag til þess
að koma í holu hlýja
höfgum pabba sínum hjá
kúra sig í kotið hálsa
kærleiksorðin þurfti fá
letras aleatórias
- letra de bryn mawr all-stars - vansire
- letra de with me - m.y78
- letra de let er rip - planet cool!
- letra de what is the need - orezi
- letra de time marches on - anthropovore
- letra de dont stop mining - ph0flopper
- letra de isolation street - drew sarich
- letra de outlaw69 - warm
- letra de dirty dancing - claudia spicy
- letra de drunkk - brandon boyce