letra de árás - skalmold
kvöld, úr norðri kólna fer.
kemur yfir heiðar:
vængjasláttur, vætta her,
varúlfar til reiðar.
ég reið yfir landið mitt, reri’ út á fjörð.
rólegur sjórinn, ég lofaði njörð
í ljósanna skiptum ég leit upp í skörð,
ljót var sú sýn er mér mætti.
kom yfir brúnina kolsvartur her,
ég kúventi bátnum og hraðaði’mér.
vængirnir steinrunnir, vígtannager
og væl sem nú kyrrðina tætti.
skugga hann varpaði, skelfileg sjón.
skálmöld var risin og mikið varð tjón.
drukknaði þannig mín dýrasta bón,
drepið var allt sem ég unni.
verja þau átti en var til þess seinn,
viti menn, lifandi eftir ei neinn.
ataður svörður sem áður var hreinn,
allt mitt var hrunið að grunni.
ég sá:
barnið mitt tætt, blóðugt og hrætt.
ég sá:
barið á húsgripum mínum og ætt.
ég sá:
saklaust blóð, fljóta um fljóð.
ég sá:
fjölskyldu slátrað sem var mér svo góð.
ég sá:
deyja mær, dæturnar tvær.
ég sá:
dreyrrauðar klærnar sem læstust í þær.
ég sá:
visna jurt, var einhvers spurt?
ég sá:
vágestinn glotta og halda á burt.
gekk um garð,
gríðarskarð,
höggvið hart,
hel mig snart.
vængjuð vá,
vargur sá
nafn hans nefnt,
nú skal hefnt
heit er gefið, heit sem verður efnt.
letras aleatórias
- letra de aliya janell (dance) - albatrossdog
- letra de series 12 - the rapfest cipher series
- letra de ziyan shit - good peoples
- letra de some 'ol fasho thang interlude - hideandseekzoo
- letra de string theory - string theory
- letra de karma - shatterproof
- letra de the front - ron e polo
- letra de criticism - lil jetzzz
- letra de change - byron bank
- letra de lamb - wolvves