
letra de trúnó - moses hightower
þau sitja eftir
með auð sætispláss til beggja handa
dreypandi sitt á hvað
á drykkjunum sem eftir standa
“alveg sjálfsagt
ekki að minnast á
láttu vaða
leystu skjóðu frá
ég segi engum!”
svo kryfjast hjartans mál
og einhvers andadýr er panda
trúnó, trúnó, kinn við kinn:
þú og ég og einhver vinur þinn
trúnó treina, trúnó viðhalda
nóttin naumast orðin miðaldra
og við svo krumpuð bæði og breytt
því það er langt um liðið
og hundruð hundaára
hafa á okkar daga drifið
“alveg sjálfsagt
ekki að minnast á
láttu vaða
leystu skjóðu frá
ég segi engum!”
trúnó, trúnó, kinn við kinn:
þú og ég og einhver vinur þinn
trúnó treina, trúnó viðhalda
nóttin naumast orðin miðaldra
hann ber af sér blak frá makanum –
þau takast á, hvort skuli saka um
þakið sem hrakar í rakanum
„en ég makaði á það fram og til baka, ha?
vertu ekki hengjandi smið fyrir bakara.“
trúnó, trúnó, (kinn við) kinn við kinn:
þú og ég og einhver vinur þinn
trúnó treina, trúnó viðhalda
nóttin naumast orðin miðaldra
letras aleatórias
- letra de balenciaga - osm
- letra de mercy - cocorosie
- letra de keep it simple - jessica gerhardt
- letra de me necesita - prettymuch
- letra de brothers - xanman
- letra de 가리온 (garion) - garion
- letra de sihlly rahbett - rhiyaun
- letra de gallows humor - u.s. christmas
- letra de yeah - dj unic feat. manu manu
- letra de somebody hold me - jazz the man