letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de allt sem eitt sinn blómstraði - misþyrming

Loading...

það rigndi í dag
og hugur minn flögraði ráðlaus um tómið

hægt börðust lungun um loftið
og þungt sló biturt hjartað

reykurinn steig upp gegnt dropunum
sem hugsanir sveiflandi í járnum

þær klófestu sig um mig allan
og héldu mér í föstum skorðum

skýin huldu himininn
og lokuðu okkur inni

marraði á milli trjáa
þegar droparnir slógust á laufin

langt nær slóðin er litið er um öxl
og þungt er hvert einasta spor

sólin fjarlægist hægt handan við skýin
hægt, en ákveðin er hún

þungt liggur yfir jörðu
flóðið frá himnum

rifbein mín halda þétt í skefjum
anda mínum og hjartslætti

brátt kemur langur vetur
og bundin erum við einsömul jörðu

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...