letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de tvær stjörnur - megas (icelandic artist)

Loading...

texti “tvær stjörnur” eftir megas[intro/instrumental]

[verse 1]
tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer
en ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín

[verse 2]
ég gaf þér forðum keðju úr gulli um hálsinn þinn
svo gleymdir þú mér ekki í dagsins amstri nokkurt sinn
í augunum þínum svörtu horfði ég á sjálfan mig um hríð
og ég vonaði að ég fengi bara að vera þar alla tíð

[chorus 1]
það er margt sem angrar en ekki er það þó biðin
því ég sé það fyrst á rykinu, hve langur tími er liðin
og ég skrifa þar eitthvað með fingrinum sem skiptir öllu máli
því að nóttin mín er dimm og ein og dagurinn á báli

[verse 3]
já, og andlitið þitt málað. hve ég man það alltaf skýrt
auglínur og bleikar varir, brosið svo hýrt
jú ég veit vel, að ókeypis er allt það sem er best
en svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst

[chorus 2]
ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér
og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér
og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á
en ég sakna þín mest á nóttinni er svipirnir fara á stjá

[verse 4/outro]
svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær
stjörnur á blárri festinguni sem færast nær og nær
ég man þig þegar augu mín eru opin, hverja stund
en þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á þinn fund

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...