letra de unglingurinn í skóginum - jórunn viðar
Loading...
mig dreymdi ég geingi í skóginn eins og í fyrra
er ég gekk útí skóginn með stöllu minni
og stóð á bakkanum við lækinn
þá kemur únglíngurinn í skóginum
hlaupandi með úngan teinúng í hendi sér;
klæddur skykkju sem var ofin úr laufum
hann lýtur niður að læknum
eys vatni í lófa sér;
þeytir í loft upp og seigir:
eia! eia!
eia vatn!
eia perlur!
eia leikur, leikur í sólskini útí skógi!
þú ert orðin fullkomin síðan í fyrravor
hver fór skóginn
kysti anemónur og hló
anemónur og anemónur
og fór að gráta?
táta, veslings táta
kondu litla nótintáta
að kyssa pótintáta
úti í skógi!
letras aleatórias
- letra de alyssa - automne
- letra de hope - hélder josiki
- letra de universo gueto - gog
- letra de armazindy - frank samuel
- letra de since you stole my heart - someone still loves you boris yeltsin
- letra de disagiato - dogs machete
- letra de miley cyrus - guzman
- letra de call me the witch - cotton mather
- letra de done my best - josephoum
- letra de potential - miles chancellor