
letra de bíum bíum bambaló - hafdís huld
bíum, bíum, bambaló
bambaló og dillidillidó
vini mínum vagga ég í ró
en úti bíður andlit á glugga
þegar fjöllin fimbulhá
fylla brjóst þitt heitri þrá
leika skal ég langspil á;
það mun þinn hugann hugga
bíum, bíum, bambaló
bambaló og dillidillidó
vini mínum vagga ég í ró
en úti bíður andlit á glugga
þegar veður geisa grimm
grúfir yfir hríðin dimm
kveiki ég á kertum fimm
burtflæmi skammdegisskugga
bíum, bíum, bambaló
bambaló og dillidillidó
vini mínum vagga ég í ró
en úti bíður andlit á glugga
ef þér sultur sverfur að
sauðakjöt ég hegg í spað
fljótt svo standi full með það
tunna hver, dallur og dugga
bíum, bíum, bambaló
bambaló og dillidillidó
vini mínum vagga ég í ró
en úti bíður andlit á glugga
ef þig langar eitthvert sinn
ögn að smakka góðfiskinn
fram ég sendi flotann minn:
skínandi skútur og kugga
bíum, bíum, bambaló
bambaló og dillidillidó
vini mínum vagga ég í ró
en úti bíður andlit á glugga
hjá mér bæði hlíf og skjól
hafa skaltu, ef illskufól
flærðir með um foldarból
læðast og launráð brugga
bíum, bíum, bambaló
bambaló og dillidillidó
vini mínum vagga ég í ró
en úti bíður andlit á glugga
letras aleatórias
- letra de prefixo de verão - ludmilla
- letra de shame on you intro - bass santana
- letra de les deracines - rome
- letra de streetfight (freestyle) - l.e.f
- letra de velociraptor - gigante no mic
- letra de hechos de gente - pedro guerra
- letra de real shit - tybanga newyork
- letra de david - blake labella
- letra de trigésima quinta - jotachina
- letra de thotsfighting - syfez