letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de ...en það væri ekki ég - flott

Loading...

ef ég gengi um með filmuvél
og litla svarta bók
hengi á roasters og á kb
tæki upprúllaðan smók
læsi fleiri heimsbókmenntir
greindi þær svo klók
dularfullur introvert
gamaldags en woke

eða færi oft á festivöl
þætti gaman niðrí bæ
hl-staði á raftónlist
gerði á lista á spotify
öll út’í tattúum frá berlín,
kiev og sjanghæ
– óheflaður slarkari
með afslöppuðum blæ

þá myndi eflaust ýmsum finnast
ég spennandi og forvitnileg
og myndu mér vilja kynnast
…en það væri ekki ég

hvað með ef ég væri landvörður
sem elskaði útivist?
af útkalli hjá landsbjörgu
ég hefði aldrei misst
kvef og flensu á einum degi
gæti af mér hrist
og ég veldi aldrei leið
sem væri léttust eða styst
eða bara ef ég væri aðeins 
heitari en ég er
í sundi og í ræktinni
fólk myndi horfa á eftir mér
við hverja mynd á insta
fengi nýjan follower
hver væri leyndarmálið mitt?
– jú vatn og chiafræ og ber

þá myndi eflaust ýmsum finnast
ég spennandi og forvitnileg
og myndu mér vilja kynnast
…en það væri ekki ég

og ef ég væri nú stöðugt að reyna
að vera einhver önnur en ég er
þá vil ég nú meina
að ég myndi týna sjálfri mér

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...