letra de trúir þú engla - bubbi morthens
það er garður vid götuna þar sem ég bý
med gömlu fólki í stað blóma
þar finnurðu höfuð full af minningum
og augu sem einmana ljóma
vegna löngu liðinna kossa
löngu liðinna ára
þessi gömlu hjörtu þjást
hún lifir eins lengi og þau lifa
þessi gamla ást
trúir þú á engla sem villast í stórborg
og vafra einmana um götur og torg
trúir þú á engla sem komu til að gefa
gömlu fólki frið og ótta þess að sefa
en villtust af leið
en villtust af leið
þad er bar i hverfinu þar sem ég bý
fullur af saktarkennd kvenna
þar finnurðu ótta og angist í glösum
af innbyrgðri reiði þær brenna
vegna löngu liðinna högga
löngu liðinna tára
þessar köldu konur þjást
hún lifir eins lengi og þau lifa
lygin um sanna ást
trúir þú á engla sem villast í stórborg
og vafra einmana um götur og torg
trúir þú á engla sem komu til ad gefa
gömlu fólki frið og ótta þess ad sefa
en villtust af leið
en villtust af leið
letras aleatórias
- letra de sharp nails and malice, the devil - benn
- letra de all i need - lyricalgenes
- letra de there's nothing left - psyberfairy
- letra de gin and juice - sissy bar
- letra de my kind of radio - maisly
- letra de the ghost - the donner party
- letra de you and i - owl eyes
- letra de you got me - the roots & j. period
- letra de high hopes - chen vanna
- letra de idemy z muzyckom do malućkigo - golec uorkiestra