
letra de þú færð' að vita - bubbi morthens
þegar dagur og nóttin njótast
og napur vindur um húsið fer
þegar máninn trónir hæst á himni
og hendur mínar strjúka þér
þá færðu‘ að vita, þá færðu‘ að vita
þá færðu‘ að vita, vinan, hver ég er
þegar algleymið færir þér friðinn
og fingurnir í rettu sér ná
í rúminu heit þú dormar dofin
og draumar þínir fara á stjá
þá færðu‘ að vita, þá færðu‘ að vita
þá færðu‘ að vita, vinan, hver ég er
þegar rósirnar hneigja sín höfu´
og hamingjan hvíslar svo lágt
að eyru þín nema næstum því hljóðið
og næturinnar hjartaslátt
þá færðu‘ að vita, þá færðu‘ að vita
þá færðu‘ að vita, vinan, hver ég er
þegar augun í myrkrinu mætast
og mjúkar varir leita þín
þegar seinasti bíllinn í borginni þagnar
og bros þitt vaknar ástin mín
þá færðu‘ að vita, þá færðu‘ að vita
þá færðu‘ að vita, vinan, hver ég er
letras aleatórias
- letra de foreign car - sniperchar
- letra de dias de tedio - rey gordiflón
- letra de kawhi - ace
- letra de gush mobbin' - gush mob
- letra de un tipo como yo - el momo
- letra de momma said - infamous ace
- letra de like huh - nya lee
- letra de room 808 - hqkay
- letra de flexx - arthur blessing
- letra de el espantapájaros - elio toffana