
letra de skipstjóravalsin - bubbi morthens
hvenær var það þegar settist sólin
á sjóinn og geislarnir kysstu hólinn
hún sat á öldunni langt frá landi
spor okkar lágu í svörtum sandi
kossinn var aldrei sætari en þá
þorpið brosti, bauð góðan daginn
ungum elskundum sem sátu við sæinn
ég get svarið það var eins og í gær
enginn kvóti, öll svik voru fjær
kossinn var aldrei sætari en þá
og dansinn dunaði
júlínóttin ilmaði
af birkinu og þú
í fangi mér
skiluðum okkar, ástin mín
öll börnin menntuð, vel lukkuð og fín
lífið sem mig dreymdi alltaf um
var ástin með þér og börnunum
kossinn var aldrei sætari en þá
og dansinn dunaði
júlínóttin ilmaði
af birkinu og þú
í fangi mér
ég var sjómaður, þú varst sjómannskona
í ellinni er staðan okkar svona
lífið hefur leikið við okkur bæði
án þín hefði ég aldrei vitað hvar ég stæði
ó ástin mín, ó ástin mín
koss þinn sætur ennþá er
letras aleatórias
- letra de withering bones - phantom limb
- letra de only she - stephanie michaels
- letra de весна (the spring) - ираклий гвенцадзе (irakliy gventsadze)
- letra de mask off (freestyle) - nazty yung x
- letra de i'll be with you - flora cash
- letra de good life - denitia
- letra de mike's world - lobby boxer
- letra de routine - angel of the death
- letra de top off! - deityganzo
- letra de don't tell me what to do - ar glock & lil' azrael