
letra de seinasti dagurinn - bubbi morthens
Loading...
þig vekur þorpsins vökuljóð
vinirnir horfnir frá þér
dagurinn vaknar í vindlings glóð
og vonin hún slokknar í þér
uppi í hlíðinni kofinn hýmir lágur
hokinn þú staulast á fætur
yfir kajann ríkur saltur sjár
og sest í hjartarætur
á bandið tonnin fjórtán fara
fimmtán ef þú telur með slý og þara
sömu tökin í tuttugu ár
tíminn læknar engin sár
með stirðan skrokkinn stendur þú
starir út um gluggann
sem gamall maður manstu nú
í myrkrinu feigðarskuggann
fyrir sunnan bíður þín pantað pláss
prísund fyrir gamalmenni
þér verður sent það stofustáss
sem þeir stimpla ekki sem brenni
einskis nýtur njóttu þess
sem nóttin vill þér færa
á grund þú hlýtur heiðurssess
og handavinnu að læra
letras aleatórias
- letra de bricks - shawn kilos
- letra de creative - creep-p (eyeris)
- letra de missinme - casmel
- letra de svédasztal - holdudvar
- letra de its yo birthday! - tig
- letra de пустота души (emptiness of the soul) - anivar
- letra de weed geschenkt - witten untouchable
- letra de the line between us - 3adman
- letra de interlude to nothing - babyshark
- letra de candi cane - psmiith