
letra de menn að hnýta snörur - bubbi morthens
hún vinnur úti eins og tíðkast hér
áhyggjur og fjögur börn, líkt og vera ber
karlinn er á sjónum, þénar sama sem ekki neitt
saman herða ólina og engu geta eytt
þau heimta engar milljónir, bara mannsæmandi laun
matarskatt í bónus fá og skilja ekki baun
þau þekkja bara vinnuna, í víti af henni er nóg
vakna til að lifa og aldrei finna ró
sjaldan þú heyrir um hryllinginn þann
hengdan úti í bílskúr sinn föður barnið fann
með skilaboð á miða skráð ,,ég get ei meir“
skuldin er hjá mér og þér og á því lifa þeir
barnfóstran er vídeó þau vaka fram á kvöld
vita ekki um skuldirnar sem duga í heila öld
en rifrildin þau heyra og hræðslan smýgur inn
þau híma undir sænginni með náföla kinn
sjaldan sérðu uppboðin né andlitin grá
eða augu full af tárum og vonlausri þrá
þér þykir það sjálfsagt skrítið að skuldin er hjá oss
skondið er að vita þessu veldur lítill kross
letras aleatórias
- letra de whirlwind purification - burn down eden
- letra de omnivorous - burn down eden
- letra de u zemlju pao bih od stida - rođa raičević
- letra de influence of the magi - zaum
- letra de i don’t do looking back's - jonna lee
- letra de город-герой (hero city) - стул сталина (stul stalina)
- letra de 최고의 행운 (best luck) - chen
- letra de qızıldan qəlb - smoke
- letra de assim vem de cavalo (trap drill) - hc
- letra de where the cash at (freestyle) - wiz khalifa