letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de maðurinn er einn - bubbi morthens

Loading...

maðurinn trúir hann sé herra móður jarðar
jörðin er náma sem þarf að skila auð
maðurinn hann sveltir börn sinna bræðra
sem dreymir ekki gullið aðeins brauð

maðurinn trúir hann sé tæknilega greindur
telur sig inni og veit hvað er svalt
maðurinn er tengdur og trúir blint á netið
tilfinningalíf hans er flatt og kalt

maðurinn er einn, maðurinn er einn
og veröldin verður minni og minni

maðurinn hann telur ástina tímasóun
trúir á kynlífið nakið og hrátt
maðurinn leikur guð og grýtir eigið hjarta
glímir við sjálfan sig fínnur enga sátt

maðurinn hann trúir á frægðina og frama
friðlaus í neyslunni týnir sjálfum sér
maðurinn gekk frá guði götuna breiðu
guð minn ég bið þig ekki gleyma mér

maðurinn er einn, maðurinn er einn
og veröldin verður minni og minni

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...