
letra de lögmál verður að uppfylla - bubbi morthens
við vorum þrettán við borðið, bræðurnir og hann
í brjósti mínu hjartað fullt af kvíða
á þeirri stundu var ég ákveðinn að hætta við
þegar hann spurði mig eftir hverju ertu að bíða
ekki tefja, þú veist, tíminn þinn líður
lögmálið verður að uppfylla
þá skildi ég allt, mér var ætlað að svíkj’ann
þeir sögðu hann lýðnum vera að spilla
svo ég stóð upp og augu hinna fylgdu mér til dyra
úti í myrkrinu kom efinn sem mara
ég heyrði í þeim hrópin er ég gekk í burt
og ég fór þangað sem ég átti að fara
eftir að mér var borgað talaði faðir hans til mín
trú þín er mikil og hreint þitt hjarta
þú gerðir það sem þér bar að gera
því munt þú í kvöld líta ljósið hans bjarta
mitt hlutverk var ákveðið alveg frá byrjun tímans
allt var skrifað, jafnvel sjálfur kossinn
hann vissi það sjálfur frá því hann sá mig fyrst
það yrði ég sem seld’ann á krossinn
letras aleatórias
- letra de rodeo - sophia kennedy
- letra de broke ass - albns
- letra de 돌멩이 (stone) - mingginyu
- letra de proibido terminar - gusttavo lima
- letra de рубли (rubles) - exvy
- letra de rushmore - jamaica
- letra de vives el momento - sergio denis
- letra de thank you - fameye
- letra de serious consideration - coinflip cutie
- letra de polta mut sporapysäkille - köyhä jonne