
letra de horft til baka - bubbi morthens
þessi augu minna á herskip hjartans
sem hljóðlaus sigla vokandi dimmrautt hafið
tundurskeytaorðin finna í myrkrinu markið
og móðurskip heilans liggur í djúpinu grafið
og ég stari á þig í gegnum glasið og vökvann
meðan grimmd þín flæðir bakvið lokaðar dyrnar
dreg að mér andann og eigna mér glæran botninn
út úr angóruvörum þínum standa þyrnar
í myrkvuðu rúminu lifa minnislausir snákar
og mjúkir kaktusar heitum örmum þig vefja
þú sérð að koddinn er fylltur með fögrum orðum
sem fanga þig nakta og þreyttan hug þinn sefja
í þínu ljósa hári hláturinn sefur draumlaus
en hatrið nývaknað lærir strax hver á leikinn
það er heitt hérna inni og allar dyr eru læstar
eitthvað er að brenna en ég sé bara ekki reykinn
á bankabók ástarinnar eru aðeins kossar kaldir
og við klífum ísinn í von um að finna þar hita
en finnum aðeins lögmenn klædda kuldaúlpum
sem kafa oní hjörtun og fá sér þar bita
ástin á fleiri andlit en tekur að telja
trúðurinn fleiri tár en harmur okkar beggja
ef sál mín hefði vængi væri ´ún flogin fyrir löngu
frjáls undan oki þessara gulu veggja
letras aleatórias
- letra de amber - nickwuh
- letra de alice - hillodark
- letra de much better - chriad
- letra de la pista - eddie power
- letra de chasseur déprime - thomas cvd
- letra de waterproof - ab syndrom
- letra de imagine - summrs
- letra de lost in love's magic - sandy west
- letra de c u - sansette
- letra de meu dengo - trio los angeles