letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de breiðstræti ástarinnar - bubbi morthens

Loading...

ég gekk eftir breiðstræti ástarinnar
og ég sá bara hjörtu og blóð
kona hrópar þú ert á leið til glötunar
og í augum hennar brann undarleg glóð
ég sá sjálfan mig syngja um eilífa ást
er það svona sem maður á að þjást
við sjónarhringinn sigldi nóttin inn
svört seglin þau fylltu huga minn

ég var í s-x skrefa fjarlægð frá paradís
hjarta mitt lá í dvala undir ís
og augun mín voru blind
og augun mín voru blind

ég rakst á engil sem leitaði að
stað til að biðja á penna og blað
og saman við báðum inn á reykfylltum bar
báðir í von um að fá rangt svar
hugur minn fangelsi og ég finn ekki út–
gönguleið og innra er allt komið í hnút
breiðstræti ástar þar sem angist og sorg
ástir og örlög fylltu þar torg

ég var í s-x skrefa fjarlægð frá paradís
hjarta mitt lá í dvala undir ís
og augun mín voru blind
og augun mín voru blind
hinu megin við götuna var garður svo stór
grænn á að líta og þangað ég fór
ég sá fólk híma í biðröð heyrði þúsund radda klið
horfði á þegar þeir opnuðu edens hlið
og massinn hann ruddist og reyndi í að ná
eplin safaríku sem uxu trénu á
ég sneri við og gekk út á breiðstrætið hvar
gæfan kannski biði mín og hið eina rétta svar

ég var í s-x skrefa fjarlægð frá paradís
hjarta mitt lá í dvala undir ís
og augun mín voru blind
og augun mín voru blind

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...