
letra de mamma þarf að djamma - baggalútur
mamma er enn í eldhúsinu, úh, úh, úh
uppgefin á þessu og hinu, úh, úh, úh
teygir sig í kampavínið, kælir það í drasl
á klaka setur vandamálin, áhyggjur og basl
spyrðir sig í sparigallann, úh, úh, úh
sparslar fésið, reyrir mallann, úh, úh, úh
mamma þyrfti að sofna því mamma er svo þreytt
en mamma landar engum þorsk-m sofi hún út í eitt
mamma, mamma ætlar að djamma
fá sér nýjan vin
mamma, mamma ætlar að djamma
elsku kerlingin
svo ljúfsárt getur lífið verið, úh, úh, úh
hún losar sig við krakkagerið, úh, úh, úh
rauðum vörum litar glasið, lakkar tásurnar
lyftir barmi, þarf að toppa hinar pjásurnar
af lymsku skal nú lagt á ráðin, úh, úh, úh
hvar leynist skársta næturbráðin? úh, úh, úh
stundum er hún heppin en oftast fer allt í fokk
þá fer hún heim með öskupöddufullan drullusokk
mamma, mamma ætlar að djamma
til í tuskið er
mamma, mamma ætlar að djamma
ein með sjálfri sér
fengitíminn löngu liðinn, úh, úh, úh
lokametrinn skal þó skriðinn, úh, úh, úh
þó óbeislaðar gamlar merar ættu að brokka heim
það eru engir prinsar eftir til að brynna þeim
mamma, mamma ætlar að djamma
hún á engan mann
mamma, mamma ætlar að djamma
það eina sem hún kann
mútta, mútta ætlar að tjútta
elsku kerlingin
mútta, mútta ætlar að tjútta
og finna í þetta sinn
nýja pabbann þinn
letras aleatórias
- letra de waiting all night - julia van der toorn
- letra de crocodile rock - juan ricondo
- letra de nie ein rapper - sonny black & saad
- letra de a.m.o.u.r. - ali (lunatic)
- letra de there is a mountain - single version - donovan
- letra de там где смерть (there where death) - corpseet
- letra de hep yek - özlem tekin
- letra de all you're gonna hear is - lil cuete
- letra de so violento so macabro (en vivo) - pxndx
- letra de they talkin' - kenson (formerly emmo the kid)