
letra de hefðirnar - baggalútur
ég vil fá mitt hangikjöt, af sílspikuðum sauðum
og svolítið af stökk-m laufabrauðum.
– og þú vilt ‘þarna uppstúfinn, annars ferðu að kvabba,
og upphitaða rauðkálið í bleiku blómaskálinni frá pabba.
ég vil skreyta jólatréð, en treina það fram á þorlák.
– týpískt þú, að vilja eitthvað hálfkák.
svo vilt þú flippað meðlæti, fyrir þá sem þora.
– en þú vilt bara venju samkvæmt niðursoðið dósagums frá ora.
þú vilt fá þitt. ég vil fá mitt.
skítt með allt hitt.
höldum í hefðirnar.
þú vilt fá þitt. ég vil fá mitt.
allir fá sitt.
höldum í hefðirnar.
þú vilt senda jólakort en ég vil ekki sjá þau
því enginn sem við könnumst við vill fá þau.
– þú vilt fara í messuna og mygla þar í friði
en mér er fremur illa við alla svona kristilega siði.
þú vilt fá þitt. ég vil fá mitt.
skítt með allt hitt.
höldum í hefðirnar.
þú vilt fá þitt. ég vil fá mitt.
allir fá sitt.
höldum í hefðirnar.
þú vilt að allt sé eins og forðum.
– helst ekkert ókunnugt á borðum.
þú vilt kaupa furu, ég vil frekar normansþin.
– ég fríka út ef gjöfin mín er lin.
þú vilt fá þitt. ég vil fá mitt.
skítt með allt hitt.
höldum í hefðirnar.
þú vilt fá þitt. ég vil fá mitt.
allir fá sitt.
höldum í hefðirnar.
höldum í hefðirnar.
þú vilt fá þitt. ég vil fá mitt.
þá erum við kvitt.
höldum í hefðirnar.
letras aleatórias
- letra de 7am - chaize(rus)
- letra de what's life, to waste it? - tyfontaine
- letra de good enough - temptationz (1337m0b)
- letra de nước cờ em chọn (acoustic version) - ưng hoàng phúc
- letra de don't speak - brennan heart
- letra de slding wit sticks - cayo banks
- letra de só rock só rock - mc bn, dj wizard & dj léo da 17
- letra de gegengift - zaki (producer)
- letra de faucet - cayo banks
- letra de headstrong - peach cooler