letras.top
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

letra de kem, sé, sigra - sesar a

Loading...

[viðlag]
veni, vidi, vici (ha?)
kom, sá, vann sigra (sesar a)
veni, vidi, vici (þú veist það)
kem, sé, vinn sigra (sesar a)

veni, vidi, vici (ha?)
kom, sá, vann sigra (sesar a)
veni, vidi, vici (þú veist það)
kem, sé, vinn sigra (sesar a)

[erindi 1]
er ég hér inni í von um að ég vinni mér inn gjaldeyri?
ég held ég ekki heyri fáránleika meiri
engan siðapostula ætla að leika
en vinsamlegast haltu kjafti og horfðu á gengið breika
þetta snýst ekki um aur eða eiga gellur líkt og saur
hvað heldurðu að ég sé? steiktur uppagaur?
það sem ég vil frekar er virðing
vonandi að þú öðlast á því skilning
því virðing er miklu meira virði en nokkru sinni einhver króna
drekktu þá bara kardimóma með næsta róna
hvað ertu að gefa í skóna?
sesar a er ekki hægt að klóna
sama hvað þú umbúðir bónar þá er það innihaldið sem gildir
ég og ríman erum náskyldir
ég vildi að ég gæti gert á öllu skil
og meira til
en geimurinn er ekki nógu stór
fyrir minn hugarsjó
[viðlag]
veni, vidi, vici (ha?)
kom, sá, vann sigra (sesar a)
veni, vidi, vici (þú veist það)
kem, sé, vinn sigra (sesar a)

veni, vidi, vici (ha?)
kom, sá, vann sigra (sesar a)
veni, vidi, vici (þú veist það)
kem, sé, vinn sigra (sesar a)

[erindi 2]
löng leið frá heila út í tá
þótt í stjörnu reyni að ná
læt mér nægja að sá
fræi í þitt hjarta
sem þú munt rækta og skarta
annað skorið burt eins og varta
hlærðu að mér?
þá ertu að hlæja að sjálfum þér
eins og hver sér
á eftir þér í strauminn
þar sem annar heldur í tauminn
kominn í hrossakaupin síðan á senu
gerfi í gervi á meðan ég sett allt í kerfi
næ ykkur sofnandi á verði
da-dada-dada-dada-da-da-da-da
hér sannað með rímur um allt annað
en bíla, gull og sveitta rassa
rödd mín hljómar frá borg upp til sveita
[viðlag]
veni, vidi, vici (ha?)
kom, sá, vann sigra (sesar a)
veni, vidi, vici (þú veist það)
kem, sé, vinn sigra (sesar a)

[erindi 3]
með orð, stafi og atkvæði
ég djúpt feit flæði
legg yfir feitustu bítin
í þínum græjum ég lít inn
og skýt inn einni spurningu
ef að innihaldið myndi hverfa
myndirðu láta af því verða
á umbúðir einar og sér að hlýða
eða myndirðu frekar bíða
eftir að ég hugsun set í rím
tjáningin er mín
héðan til plútós eins og sólin ég skín

[viðlag]
veni, vidi, vici (ha?)
kom, sá, vann sigra (sesar a)
veni, vidi, vici (þú veist það)
kem, sé, vinn sigra (sesar a)
veni, vidi, vici (ha?)
kom, sá, vann sigra (sesar a)
veni, vidi, vici (þú veist það)
kem, sé, vinn sigra (sesar a)
cancel

letras aleatórias

MAIS ACESSADOS

Loading...